Til að standa undir nafni sem vefsíða sem hefur að markmiði sínu að stuðla að uppfræðslu almennings um allt milli himins og jarðar... hmm...
Alla vega, þú veist þegar þú kaupir eitthvað sem er með ljótum límmiða sem þú reynir að plokka af en það tekst ekki betur en svo að þú situr uppi með eitthvað sem er útbíað í lími? Það sem þú vilt gera er að ná í smá aceton, sulla því á bómul og nudda unitið, þá reddast þetta á örskotsstundu.
,,Gunni, þú fjallmyndarlegi djöfull'', heyri ég ykkur segja, ,,hvar í fjandanum á ég að finna það sem þú kallar Aceton?'' Vel spurt, ímyndaði lesandi. Ef þú ert stelpa eða leigir á neðri hæðinni veistu það örugglega, en fyrir ykkur hina þá má finna Aceton í naglalakkseyði. Þetta virkar þokkalega vel og drasl.
Nú, ef ég var einfaldlega síðasti maðurinn á plánetunni til að fatta eitthvað svona í (n+1)-ta skipti, þá... fokk jú bara. Að lokum vil ég taka smá stund til að biðjast innilegrar afsökunar á íslenskunni hér að ofan, ég er í slæmum félagsskap Nathan Barley og Zero Punctuation.
In conclusion: USA! USA! USA!
Vel húsráð o.s.frv.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment