Ruslatunnur í Shaftsbury:
Nathan Barley

Ein af undarlegri aukaverkunum þess að búa í Frakklandi er að ég er kominn rosalega inn í breska kómedíu. Þetta er ekki af því hún er eitthvað sérstaklega vinsæl hérna, fólk virðist aðallega spennt fyrir vondum illa talsettum bandarískjum þáttum, heldur vegna þess að ég bý með fullt af Englendingum.

Það gengur náttúrlega ekki að ég komi heim og byrji að slá um mig með tilvitnunum í þætti sem enginn þekkir, þannig ég ætla að taka á mig að benda á hina og þessa bresku gamanþætti sem eru óþekktir heima. Þetta ætla ég að gera vikulega, á föstudögum, undir yfirskriftinni "Ruslatunnur í Shaftsbury".

Í síðustu viku henti ég upp einum þætti af The IT Crowd, sem eru frábærir þættir skrifaðir af sama manni og gerði Black Books og Father Ted. Núna er planið að bjóða upp á eitthvað mjög öðruvísi; það er að segja Nathan Barley. Þessir gjörsamlega frábæru þættir eru hugarfóstur Chris Morris, sem leikur yfirmanninn í The IT Crowd, og Charlie Brooker. Ég veit vel að þið hafið ekki hugmynd um hvaða fólk þetta er, en það mun breytast á næstu vikum.

Nathan Barley er þáttur um samnefndann mann, sem er ,,a self-facilitating media node'' eins og hann segir sjálfur, en flestir aðrir myndu kalla hann gjörsamlega óþolandi hálfvita. Fyrir utan hann koma mikið við sögu systkynin Dan og Claire Ashcroft, sem eru talsvert eðlilegri en þó nokkuð gölluð, auk margra minni spámanna.

Nathan Barley sver sig í ætt við Extras og Næturvaktina að því leyti að þættirnir eru alveg öskrandi fyndnir undir réttum kringumstæðum. Þessar kringumstæður eru þegar maður er með öðru fólki og er þegar búinn að sjá nokkra þætti, sem er pínulítið takmarkandi, en guð minn almáttugur hvað þær eru þess virði. Ég meina, án Nathan Barley gætum við ekki haft orðin "ég sparkaði upp brúnu hurðinni og málaði hana hvíta á leiðinni út" um endaþarmsmök, sem eitt og sér er þess virði að sitja í gegnum sex þátta seríuna.

Þáttur 1 - Hluti 1

Þáttur 1 - Hluti 2

Þáttur 1 - Hluti 3

No comments: