Ég man ekki í augnablikinu hvað ég hef gert mikið af hlutum sem gætu talist manndómsvígslur frá því ég fermdist; í fljótu bragði dettur mér í hug að fá bílpróf, útskrifast úr framhaldsskóla, missa sveindóminn, verða tvítugur og útskrifast úr háskóla.
Og þrátt fyrir að hafa gert þetta, og eitthvað meira til held ég, stendur eftir að ég er tuttugu og tveggja ára maður sem hlær í hvert einasta skipti sem hann sér innfeldi á Hilbertrúmum. Af hverju? Jú, af því að innfeldin eru táknuð með (.|.)
Stundum hef ég áhyggjur af mér.
Misþroski
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment