Klukkan er sex. Fyrir svona klukkutíma gafst ég upp á að reyna að sofa og fór á fætur. Þetta virðist ætla að verða einn af þessum dögum, ég vona að þetta sé ekkert meira en einhver spenningur fyrir prófinu á eftir. Ég hef séð Fight Club, ég veit alveg hvað þetta getur þýtt.
Annars held ég að það sé úrelt að telja kindur til að sofna. Bæði hefur fólk í dag aðeins óljósa hugmynd um hvernig kindur líta út þegar þær eru ekki umkringdar kartöflum og sósu, heldur er takmarkað hversu lengi maður nennir að segja "Hosa" og "Gibbagibb" í huganum.
Nei, alvöru fólk telur reglulegar segðir.
[A-Z,a-z]:
[A-Z,a-z]: [0-9]{1,2}
[A-Z,a-z]: [0-9]{1,2}\.[0-9]{1,2}
[A-Z,a-z]: ([0-9]{1,2}\.){2}([0-9]{2}|[0-9]{4})
No comments:
Post a Comment