Það er víst komin út einhversskonar bíómynd sem byggir á bítlalögum og heitir Across the universe. Bjöggi mælti mjög með henni og snéri upp á hendina á mér gegnum msn í gær þar til ég lofaði að sjá hana og hlusta á sándtrakkið. Takk Bjöggi.
Nú hef ég ekki hugmynd um hvað þessi mynd er um, en mér er nokkurn veginn sama því sándtrakkið er eins frábært og vera skal. Þetta eru tveir diskar þar sem sirkabout tíu manns sem dúndra út ábreiðum af bítlalögum eins og enginn sé morgundagurinn, og meirihlutinn af þeim er bæði næstum óþekkjanlegur og gríðarlega vel heppnaður.
Ég sé á þér að þú ert ósannfærður, þannig hér til að slaufa þessu samtali og fá þig til að hottintottast að ná í þetta sérdeilis prýðilega sándtrakk eru tvö lög af því; annað fyndið og hitt meira alvöru.
I want to hold your hand í flutningi T.V. Carpio
For the benefit of Mr. Kite með Eddie Izzard
No comments:
Post a Comment