The Fésbók, The

Ég er búinn að vera á facebook í sirka þrjá mánuði núna, og ég verð að viðurkenna að ég sé alls ekki hvað er svona heillandi við þetta sífellda hringrúnk.

Í stuttu máli virðist lítið annað koma frá þessu en spam á tölvupóstinn minn í formi mjög almennra boðskorta frá fólki sem ég hef ekki talað við í fleiri mánuði, eða ár ef að því er að spyrja, á rugl sem ég hef engann áhuga á að taka þátt í.

Í alvöru; það fyrsta sem ég hef gert á daginn undanfarnar vikur er að fá mér kaffi, kíkja á The Onion og hafna n boðum á eitthvað algert kjaftæði á facebook.

Ef þetta er það sem koma skal er ég meira en til í að verða skilinn eftir.

1 comment:

Heiða María Sigurðardóttir said...

Ég var að stofna nýtt spjallborð fyrir framhaldsnema: http://framhaldsnemar.myfreeforum.org

Láttu ganga!