Bash, ég hata þig

Ohhh, hvað ég hata bash. Fokking syntax sem gerir ekkert nema þvælast fyrir einföldustu hlutum.

Í alvöru; prófið þið einhver tímann að velja Arrested Development þátt af handahófi úr annarri seríu eftir fjóra, fimm Hvíta rússa með bash.

Ef þetta væri hægt með einhverju öðru forriti myndi ég gera það með því. (Þrír teningar teljast ekki til forrits.)

PS. Þessi færsla mun sjálfkrafa eyða sér eftir viku. Þá mun ég verða kominn með Python nóg í puttana til að "#! /bin/bash" geti vikið fyrir "#! /usr/bin/python".

No comments: