Eigum við eitthvað að ræða þetta?

Í margar vikur er ég nú búinn að spá í af hverju ég fái aldrei nein komment á þetta óforbetranlega rugl. Eða... tja, þetta er nú ekki alveg rétt. Ég gerði bara ráð fyrir að það læsi þetta enginn, og því fengi ég engin komment.

Málið er hins vegar að ég hef í einhverju ölæði valið "comment moderation" möguleikann hér á bakvið og snarlega gleymt því. Ég biðst afsökunar á þessu, og hef bætt úr þessu eins og skot.

Eftir stendur samt að eins og oft áður hef ég ekki nokkra hugmynd um af hverju fólk les þessa tímasóun.

2 comments:

Anonymous said...

Loksins!

Ég er búinn að bíða með eftirfarandi komment í einhverja mánuði:

Þú ert leiðinlegur.

Gleðileg jól, vinur! :)

Gunni said...

Nei!

Gleðileg jól, gamli.