Sei sei

Í dag ætti ég að byrja að læra fyrir prófin sem byrja í janúar. Svo ég náði í kennsluefnið á netinu, þýddi nokkur latex skjöl yfir í áhorfanlegt form, fann blöð og svoleiðis til að skrifa á... og fór að taka til í herberginu mínu.

Það er ekkert hægt að vinna í svona umhverfi. Það liggur hér pappír og föt útum allt eins og únglíngar. Svo tekur maður kaffi þegar þetta er búið. Ég er heldur ekki frá því að ég þurfi að klippa á mér neglurnar.

Og af því það eru jólin lærir maður ekkert eftir klukkan fjögur. Að frönskum tíma. Námsefnið er nú einu sinni á frönsku, og jólin bara einu sinni á ári. Svo má maður ekki byrja að læra nema á heila tímanum.

Heyrðu, dagurinn er bara að verða búinn. Það tekur því ekkert að byrja á þessu núna.

3 comments:

Heiða María Sigurðardóttir said...

Þessi færsla = líf mitt

Heiða María Sigurðardóttir said...

Klukkan er 05:46. Ég er enn vakandi... Legg til að hittast klst síðar á morgun en áætlað var.

Heiða María Sigurðardóttir said...

Nóttin er að verða búin. Það tekur því ekkert að fara að sofa núna. Hringdu bara þegar þú vaknar eða eitthvað...