Avant et aprés

Áðan fékk ég alveg rosalega skemmtilegt hrós. Við fórum nokkur úr húsinu á kaffihús, og eftir að hafa pantað nokkra drykki hvort, og spjallað við þjónustustúlkuna um hvar maður gæti fundið Kahlúa í Grenoble, skutlaði hún nýjustu umferð á borðið okkar og sagði að þó franski hreimurinn minn væri skrýtinn væri hann snarsexí.

Þess má geta að franska orðið fyrir skrýtinn er ,,étrange'' sem er sama orðið og er notað fyrir útlending, þannig eitthvað gæti hafa óvart misfarist í þýðingunni þarna að ofan.

Blessunarlega vildi svo til að barinn hafði tæmst akkúrat í þessum töluðu orðum, og Savage Garden voru að byrja að syngja ,,Truly, madly, deeply'', svo ég svaraði: ,,Eh, ouai?'' og dró einn fingur vinstri handar eftir barborðinu meðan ég gekk stöðugum skrefum í kringum það.

,,Oui'' sagði stúlkan, og beit í neðri vörina...

Til að sjá restina af þessari færslu, vinsamlegast millifærið 2.000 krónur á reikning númer 0545-14-603654.

1 comment:

Unknown said...

Það vantar kennitöluna þannig að ég geti lokið við færsluna...