Why are manhole covers round?

Það fylgir oft megalúðum eins og stærðfræðingum, tölvunördum og öðrum slíkum, að þeir eiga til að festast algerlega í að leysa eitthvað eitt afmarkað vandamál. Sem er voða fínt þannig, því það svínvirkar alveg að fresta næstum öllu til að einbeita sér, en leiðir oft til vanrækslu á flestum öðrum sviðum.

Sem dæmi má nefna þegar ég tók eftir því áðan að tónlistarspilarinn minn var ekki með innbyggt í sig að bæta við slembivöldum lögum í playlistann. Þannig ég bjó slíkt unit til. Núna get ég annað hvort opnað skel og skrifað addRandom n, eða ýtt á Alt + F5 og skrifað n, og fengið n slembivalin lög aftast í playlistann sem er í gangi.

Á móti kemur að klukkan er farin að ganga ellefu, ég er búinn að borða tvö epli frá því í hádeginu, og er ekki búinn að gera neitt annað en þetta frá því klukkan sex þegar ég tók smá pásu frá lærdómnum (villumeldingar í bash eru ekki beint þær skýrustu í heimi). Ofan á allt langar mig svo bara að hlusta aðeins á The Wall. Það er ekki mjög slembið.

No comments: