Ef maður skoðar BBC eða Le Monde eða eitthvað slíkt fær maður fljótt þá mynd að allt Frakkland logi í verkföllum, slagsmálum og uppvakningum sem vilja forvitnast um lífeyrisréttindi sín. Kannski er ég bara svona tregur, en eins og klár maður sagði: ,,Where's all this shit happening, man?''
Ég hef ekki séð ein einustu götuslagsmál eða nemendamótmæli, engar verkfallsaðgerðir hjá almenningssamgangnafólkinu (þó það sé reyndar annað kerfi en SNCF) og ekki hitt neitt fólk yfir tvítugu sem hefur sterkar skoðanir á Sarkozy. Samt á að heita að nemendur hafi verið að mótmæla í viku og fullyrt er að mörg þúsund manns í París, Marseille, Lyon, Grenoble og fleiri stöðum hafi tekið þátt í götumótmælum.
Er það samtals eða?
Við þurfum ekkert vatn
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Night the through it make can we.
Together searching on keep we'll.
Light the to on hold can we if.
After morning a be to got there's.
Nafnlaus biður að heilsa.
Ókei....
Þú færð alveg nóg súrefni hjá Frikka? :Þ
Post a Comment