Nú er ég búinn að halda uppi heiðarlegri tilraun til að láta mér vaxa skegg í rúman mánuð, og niðurstöðurnar hingað til eru í besta falli ósannfærandi.
Það má örugglega finna einhverjar umhverfislegar útskýringar á þessu, eins og vaxandi magn snefilefna í umhverfinu, undanhald karlmennskunnar, eða ótvíræðan kvenleika minn (masculinus nonexistus), en ég held ég verði að sætta mig við að mér sprettur ekki grön.
Taðskegglingur
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ekki örvænta
Post a Comment