Iii. Stælar. Þessi gaur.

Stæ-nem póstlistinn hjá HÍ hefur aldrei fært mér neitt nema eymd. Nú eða spam. En í þetta skiptið var það eymd.

Á morgun mun nefninlega Paul Sladen halda fyrirlestur í VR-Tvær um Ubuntu og Gnu/Linux, og ég er einhversstaðar úti í rassgati alheimsins og get ekki mætt. Ég fæ aldrei að gera neitt kúl!

... djöfull er ég orðinn mikill lúði.

1 comment:

Liney Halla said...

mér skilst að Paul karlinn sé sérlega góður fyrirlesari - nema hvað hann veit ekki hvenær hann á að hætta. þegar mín örugga heimild yfirgaf staðinn rúmum tveim tímum eftir að fyrirlesturinn hófst, var um 1/3 áhorfenda eftir og Paul að svara spurningum frá manni sem spurði um ýmis Ubuntu-vandamál sem komu upp í hans eigin tölvu og hann hafði ekki fattað að googla...