Í dag byrjaði sirka tveggja vikna frí í skólanum mínum. Þetta er víst árlegur viðburður og hluti af einhverju sem heitir toussants. Ekki spyrja mig, ég kinkaði bara kolli þegar mér var sagt að fara í frí.
Flestir í húsinu eru farnir heim á meðan, svo það er frekar tómlegt hérna. Við erum kannski sex eða sjö eftir, af átján, en það er svo sem ágætt. Fyrir Íslending sem er vanur því að vinir hans búi ekki í sama húsi og hafi eitthvað annað að gera á daginn en að hanga með honum er lífið komið í mjög kunnulegt horf.
En já, mig vantar þá eitthvað að gera í fríinu. Þar sem ég er búinn að besta kaffihúsaröltið nokkuð vel, og ég býst ekki við að geta eitt meira en degi í að finna flösku af Kahlúa, ákvað ég að skipta um stýrikerfið í tölvunni minni. Til hvers að læra þegar maður getur lúðast alveg jafn mikið, án þess að gera eitthvað uppbyggjandi?
Ég er búinn að keyra Ubuntu í þrjú ár og það hefur yfirleitt verið alveg dejligt bara, workspaces og apt-get eru frábærari en allt. En eftir að Baldur kynnti mig fyrir dásemdum EvilWm hefur minimalisminn tekið öll völd, og mig langar í minni og nettari útgáfu af Linux. Eitthvað sem setur fyrst upp einhvern grunn pakka sem er hægt að púsla ofan á.
Ég var nokkuð fljótur að afskrifa að compæla eigin útgáfu frá grunni, samanber Linux from scratch, því það er aðeins of stórt skref afturábak. Núna er ég aðeins að skoða Arch Linux og Slackware og lýst svo sem ágætlega á fiktið sem fylgir þeim.
Vandamálið er samt að ég hef frekar takmarkaða reynslu af öllum hinum Linux útgáfunum. Það eina sem ég hef fiktað eitthvað við, fyrir utan Ubuntu, eru Debian og Damn Small Linux. Nú er Debian auðvitað afi Ubuntu, svo það er enginn stórkostlegur munur þar á, og Damn Small Linux er eiginlega bara fyndin hugmynd. Þannig allar uppástungur eru mjög vel þegnar; hvaða útgáfur Linux eru ekki of þungar og má keyra á fartölvu?
Annars getur maður jú alltaf sett bara upp Windows Vista.
Djók.
Tölvulúðaskapur yfir hátíðarnar
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
ef þú hefur mikinn tíma sem má (eða má ekki) eyða, kíktu á gentoo.
Heilræði dagins.
Lærðu að elska Emacs og stýrikerfið skiptir ekki máli :)
StumpWM er síðan minimal gluggastjóri skrifaður í CommonLisp :D
Ég hef lært að elska Emacs. :D
Annars setti ég upp Arch + Evilwm og er bara rosalega sáttur. Minimalisminn er góður.
Post a Comment