Þetta er mjög gott kvöld. Á morgun byrjar sirka 10 daga frí í skólanum og ég er heima að horfa á gömlu Star Wars, drekka smá bjór og lesa tvinnfallagreiningu. Tvennt kemur upp í hugann:
Í fyrsta lagi er Star Wars eitt (þ.e. númer fjögur) frekar góð mynd. Ég held ég hafi ekki séð hana síðan ég var sirka 12 ára, svo það kemur nokkuð á óvart þegar maður miðar við hvernig svo margar aðrar myndir úr æsku manns hafa elst.
Í öðru lagi er alveg snarsexí hvernig maður sannar setningu Runge með Hahn-Banach setningunni úr fellagreiningu. Mér líður alveg hálf illa að geta ekki boðið þessari sönnun upp á kaffi og með því eftir lesninguna. Hver þarf á klámi að halda þegar svona hlutir eru til? Ha?
Star Wars, Stella og tvinnfó
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment