Fálki

Einhvern daginn, eftir að mér er búið að mistakast flest annað í lífinu, þá ætla ég að opna gleraugnaverslun. Það getur ekki verið erfiðara en hvað annað.

Nema hvað, mín á að heita Gleraugnaverslunin Fálki, og í staðinn fyrir bjöllu sem klingir þegar hurðin er opnuð ætla ég að þjálfa upp eitt stykki fálka til að öskra í hvert einasta skipti sem einhver kemur inn.

Það verður einhver að taka þennan brandara að sér, og ég sé engann annan vera að vinna í þessu.

1 comment:

Unknown said...

Ég veit ekki betur en Frakkinn hafi verið fyrri til ;)

Annars er ég hrifnari af uglunni,
hrrrúú hrúú...

Ég mæli alveg sérstaklega með
Domingo Hermanos Cabarnet Malbec
og Michel Torrino Malbec, en þú ert kannski bara í frönsku víni?
Hér kosta þessi gæðavín 24peso annarsvegar og 40pesoa hinsvegar, svona sirka 500kr og 800kr. Ahh, þetta er frábært land :D