Mig langar í apahauskúpu.
Þá get ég byrjað með smá svona verkefni; mig langar að saga efsta partinn af henni og spasla upp í helstu göt, eins og þessi fyrir nef og eyru og svona, og þrífa hana frekar vel.
Eftir þetta ætla ég að byrja að klæðast svörtum jakkafötum, með svartri skyrtu, svörtum skóm, og svörtu bindi hvenær sem ég er á meðal fólks. Þar að auki ætla ég að dröslast um með hægindastól frá Viktoríutímabilinu, sem ég sit í með krosslagða fætur við öll tækifæri.
Ég verð sko fokking tilbúinn ef það brestur á með bjórdrykkju.
Goodbye, you lizard scum! (2. hluti)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment