Það er aðeins ein upphrópun sem getur lýst algebruprófinu sem ég var í áðan, og hún er: "Jesus titty-fucking Christ".
Þetta voru fimm blaðsíður af blússandi drullu sem ætlaði engan endi að taka. Ég náði að skríða gegnum svona helminginn af þessu á þrem klukkutímum, sem var alveg ágætt ef maður miðar við hitt fólkið í prófinu. Eða alla vega það fólk sem gekk ekki út eftir hálftíma.
Sjitt og fokk maður. Það er voða lítið sem maður getur gert eftir svona katastrófu, annað en að hlusta á Eels og pæla í að fá sér vinnu. Hvað getur fólk með BS í stærðfræði gert?
Electro-shock blues
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment