Þetta er fyrsta tilraun til að skrifa færslu gegnum tölvupóst. Blogger viðmótið fer alveg rosalega í taugarnar á mér, eins og svo mörg önnur notendavæn viðmót þessa dagana, af því það sýnir gott sem enga KISS hönnunareiginleika (keep it simple, stupid).
Ef þetta tekst ágætlega, og ég sé svo sem ekki mikla ástæðu til að það ætti ekki að gera það, get ég héðan í frá birt allar færslur gegnum sameiginleg undur Vim og Mutt. Ef drottinn vor væri viðstaddur myndi hann sjá að það er gott.
Síðustu vikur er ég búinn að taka all svakalegann aftur-til-fortíðar pakka í öllum tölvumálum; af öllum þeim forritum sem ég nota dags daglega held ég að Firefox og mplayer séu þau einu sem þarfnast grafísks viðmóts, öllum hinum er annað hvort kippt af stað í screen keyrslu þegar kerfið er ræst eða keyrð í einstökum skeljargluggum. Og eftir að ég uppgötvaði Vimperator plugin-ið fyrir Firefox lyktar hann líka frekar undarlega.
Praktísku afleiðingarnar af þessu er að yfirleitt sér ekki nokkurn mun á tölvunni minni og 486 vél frá... hmm... geyma einn... 1996, þegar ascii klám var normið og internetið keyrði á 28kb módemum. Og vitiði hvað? Þetta er miklu betra svona.
Tökum sem dæmi hvernig maður nær í torrent skrár. Núna finn ég eitthvað til að ná í eins og venjulega, en er búinn að stilla Firefox (eiginlega Swiftfox) til að vista torrent skrár alltaf á sama stað. Forritið rtorrent keyrir stöðugt í bakgrunni og fylgist með hvort eitthvað nýtt birtist í þeirri skrá, og byrjar sjálfkrafa að hlaða niður öllu sem kemur þar inn. Svo þegar það er búið að hlaða niður allri skránni, og deila visst miklu, hættir það að deila og eyðir torrent hlekknum. Þar með er allt ferlið orðið fullkomlega sjálfvirkt, keyrir í bakgrunni og ég þarf aðeins að koma nálægt því til að njóta þess sem ég var að ná í.
Ætliði að segja mér að stöðuga clusterfuckið með Azureus eða muTorrent sé einfaldara?
Allir saman nú
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Lúði...
Þú veist að Blogger viðmótið er Microsoft Windows bloggkerfa. Sem gerir það enn skrýtnara í mínum huga hvers vegna þú, af öllum, stofnar hverja blogspot-síðuna á fætur öðrum.
Ef það var einhvern tímann einhver sem átti heima á Facebook, þá ert það þú ... :)
http://conkeror.mozdev.org/
Emacs er besti vinur barnanna...
lúði...
Stjáni, málið er að blogspot gerir nákvæmlega það sem ég vill með næstum engum flækjum. Windows gerir..., tja, oftast það sem ég vill en það er lengi að því og það gerir líka fullt af hlutum sem ég vill ekki. Þar af leiðandi nota ég það ekki.
Veistu Andreas, ég er farinn að halda meira upp á Vim en Emacs.
Bjöggi: Já. Við höfum alveg hist áður sko.
Post a Comment