Jæja, það er komið á hreint að ég kem heim um jólin. Ég lendi þann 21. des og flýg aftur heim á vörutalningardag því ég þarf að læra eitthvað fyrir prófin mín sem byrja þann 7. janúar. Helvítis villimenn eru þetta að hafa prófin eftir jól.
Þetta er auðvitað mjög góður hlutur, en það er samt nett eftirsjá eftir jólunum eins og þau hefðu orðið hérna. Ég var að muna eftir því að Low hafa gefið út jólaplötu, svo á aðfangadag hefði maður getað verið aleinn (því allir aðrir eru að fara eitthvað) að hlusta á jólaLow, horfa á Love Actually, drekka rauðvín og borða pitsu. Og hugsanlega gráta sig svo í svefn, ef stemming er fyrir hendi.
Þetta er svo sorgleg tilhugsun að maður freistast nett til að láta hana rætast.
Út fer ég
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment