,,Hér til okkar í Snoturhornið er kominn Gunnar Þór Magnússon. Gunnar hefur löngum verið stærðfræðinemi úr Hafnarfirði en hefur nú söðlað um og flust búferlum til Frakklands, þar sem hann stundar nú nám. Vertu velkominn Gunnar.''
,,Takk Þorsteinn.''
,,Segðu okkur, hvernig eru fyrstu kynni af Frakklandi?''
,,Þau eru bara alveg dásamleg. Til að byrja með er veðrið auðvitað miklu þjálla, það breytir ýmsu að sitja ekki á kletti í miðju Atlantshafi - ''
,,Haha, segðu.''
,, - nú og svo er maturinn auðvitað frábær. Maður er mjög fljótur að venjast því að vakna á morgnanna og rölta í næstu götu til ávaxtakaupmannsins og í bakaríið. Þetta er eitthvað sem þekkist ekki hérna heima.''
,,Nei nei, allir eru að flýta sér, enginn má vera að því að anda. Nú er Frakkland þekkt fyrir að vera mikið menningarland, þú hefur sennilega tekið eftir því?''
,,Jú, blessaður vertu. Það er einmitt stórt listasafn í fimm mínútna fjarlægð frá íbúðinni minni, þeir voru að klára tilkomumikla sýningu á verkum impressjónistanna frá um aldamótin.''
,,Já, en spennandi. Þú hefur auðvitað ekki látið þig vanta þar.''
,,Uhh, jú reyndar... ég ætlaði alltaf að kíkja, en það kostaði alveg fimm evrur... svo var nýr South Park þáttur að detta inn. Hahaha, þú veist hvernig þetta er.''
,,Nýr South Park?''
,,Umm... já.''
,,Þú ætlar sem sagt að segja mér að þú hafir gefið skít í obbann af fremstu listamönnum síðustu aldar til að horfa á fjóra illa teiknaða krakka bölva og ragna yfir engu sérstöku af því þú tímdir ekki fimm evrum ...''
,,Æ... hvað... kommon maður.''
,,... sem þú eyddir örugglega í eitthvert rauðvínsgutl sem saurgar ímynd víngerðar með tilvist sinni og gætir örugglega ekki greint frá almennilegu Cabarnet þó líf þitt lægi við. Mér býður við þér.''
,,Hvað er þetta maður?''
,,Farðu. Núna.''
,,... ókei. Sorrí.''
Stundum nennir maður bara ekki út
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
:D
Post a Comment