Ósnoturt

Mér líkar ekki að hér skuli standa eitthvað um hvað ég geri á daginn, og ég biðst afsökunar á því að það geri það yfir höfuð. Ég geri mér alveg grein fyrir því að daglegt líf er svo fullkomlega óáhugavert að það síðasta sem fólk vill gera til að drepa tímann er að lesa um það.

Því miður er það svo að ef maður ætlar ekki að skrifa um daglegt líf, og ætlar yfir höfuð að skrifa eitthvað, þarf maður að láta sér detta hluti í hug. Þetta krefst annað hvort þess að maður setjist niður í langan tíma á hverjum degi og vinni í þeim hugmyndum sem hafa komið upp, eða að manni detti eitthvað sniðugt í hug og aðstæður séu akkúrat réttar til að hripa eitthvað niður.

Fyrir mig er fyrri kosturinn ekki mögulegur því ég sit í langan tíma á hverjum degi og spái í stærðfræði. Það er einfaldlega miklu skemmtilegra en að skrifa, svo ég vil frekar eyða tímanum inní hausnum á mér á imaginæra loptskipinu en í að bæta mig í einhverju sem ég er ekki það góður í.

Sem hlýtur að teljast nokkuð svekkjandi fyrir þig. Því það sem dettur hingað inn hlýtur að gera það nokkuð strjált, og getur eiginlega ekki verið upp á marga fiska því mínar mest skapandi stundir fara í að byggja skýjaborgir í nykurrúmum.

... ó, rifinn ostur er kallaður râpé hérna. Would you like some rape with that bread?

No comments: