Á morgun ætla ég ekki í skólann. Þetta er ekki ákvörðun tekin af eintómum letingjaskap eins og venjulega, heldur ákváðu stjórnendur almenningssamgangna hér í bæ að slá upp smá vinaleik í þjóðaríþrótt Frakka; verkföllum.
Klukkan 9:30 hætta allar almenningssamgöngur að ganga og þar sem kerfið hérna er, ólíkt því sem maður á að venjast, frekar gott er ekki öllum skítsama.
Ég ætla ekki einu sinni að þykjast vita af hverju þetta lið er að fara í verkfall. Að minnsta kosti ekki við ykkur; ef einhver hérna spyr muldra ég bara ,,Zarkosi, il est un putain''.
Það er ótrúlegt hvað maður þarf að kunna lítið til að láta alla í kringum mann halda að maður skilji það sem er í gangi.
Þegar maður er í Róm...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment