Þrátt fyrir allar hugmyndir mínar um hið gagnstæða varð þessi dagur að heljarinnar lærdómsdegi. Ég vaknaði svona líka gríðarhress í morgun, þó ég hafi verið á einhverju fylleríi fram eftir kvöldi í gær, og fór að læra upp úr hádegi eftir að hafa tekið til.
Blessunarlega náði ég sönsum rétt í þessu þegar ég fattaði að það var orðið dimmt úti og fór að sulla í rauðvíni. Stórhættuleg þessi fellagreining, maður nær varla að sitja að sumbli eins og venjulegt fólk fyrir þessu.
Úff maður
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Já það er erfitt þegar námið er farið að trufla mann í sukkinu ;)
Post a Comment