Jæja, eftir að hafa google-leitað í svona hálftíma, keypt heyrnartól með míkrófón, komist að því að þau virkuðu ekki með tölvunni, google-leita meira, kompæla hljóðkerfið í tölvunni aftur frá grunni og gert símaat í Já hef ég í hendi mér möguleikann að hringja í hvaða landlínu sem er á Íslandi (aðeins almennar hvar sem er í Evrópu) ókeypis.
Þetta kemur þér við því nú geturðu búist við dónasímtölum frá Frakklandi á hvaða tíma sólarhringsins sem er, að minnsta kosti ef ég veit heimasímann hjá þér, ef ekki ertu sennilega seif.
Sem þýðir að mögulegir kandidatar fyrir dónasímtöl eru ekki mikið fleiri en foreldrar mínir og amma... ég er ekki viss um að þetta verði jafn skemmtilegt og ég hélt í fyrstu.
Ég, ég er Megas
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment