Word særir blygðunarkennd mína

Í dag gerðist loksins eitthvað sem ég er búinn að bíða eftir í langan tíma; ég sendi .txt skjal til manns og fékk það til baka með ásökunum um villutrú, skattsvik og almennan saurleika, áður en viðkomandi ákvað af góðmennsku sinni að beina mér á réttu brautina og sagði mér að nota Word. Það er jú forritið sem allar viti bornar verur hafa notað til að tjá sig síðasta áratug, sama hvaðan þær koma eða hvernig tölvu þær nota.

Síðasta mínúta hefur verið erfið; ég hef þurft að standast þá freistingu að líkja hrifningu fólks á Word við ýmsa ósiðlega hluti. Þú getur örugglega fundið einhverja hentuga myndlíkingu ef þú saknar hennar mjög, en að þeim slepptum er Word mjög vont forrit til að skrifa í. Það er tvennt sem eyðileggur það fyrir mér:

i) Word dregur athygli manns frá því að skrifa
ii) Word vistar allt í .doc formi

Fyrri ástæðan er mikilvægari. Allt sem ég skrifa, og ég meina algerlega allt frá litlum to-do listum og bloggfærslum yfir í atvinnuumsóknir, skrifa ég á .txt formi, eins og maður fær þegar maður gerir eitthvað í Notepad. Reyndar nota ég ekki Notepad heldur Emacs, sem er Hummer-jeppi textaritla, en allt endar þetta í pínulitlum textaskrám.

Þetta er rosalega þægilegt vegna þess að þetta aðskilur skrif og uppsetningu. Maður spáir ekkert í línubilum, leturgerð, feit- eða skáletrun, eða litlum svörtum punktum af því ekkert af því er til staðar. Þannig á það líka að vera. Áður en Word og slík forrit komu til sögunnar skrifaði fólk á pappír eða með ritvélum þar sem það sama gildir, og það gekk alveg ágætlega síðustu nokkur þúsund ár. Ef það gengur illa að klára eina setningu hjálpar nákvæmlega ekkert að fara að spá í hvort skáletrunin á orðinu þarna sé óþörf.

Ef einhver annar á að sjá það sem ég skrifa fer uppsetningin að skipta máli, og þá hendi ég skjalinu mínu gegnum Latex. Það er markup-mál, svipað og html, þannig í staðinn fyrir að svartletra orð og ýta á "Control + i" skrifar maður "\textit{orð}". Úr því fær maður .pdf skjöl sem bæði eru fallegri en sambærilegt úr Word og líta út fyrir að vera fagmannlegri, því ef allir kunna á Word er ekkert merkilegt að fá þannig skjal á borð til sín.

Seinni ástæðan er á yfirborðinu meiri hugsjón en alvöru punktur. Ekki allir nota Word, sem er búið til af Microsoft, sem er næg ástæða fyrir Linux lúða eins og mig til að sniðganga .doc formið. Það er þó til gild ástæða fyrir alla aðra að gera hið sama. Hefurðu einhver tímann reynt að færa .doc skjöl frá gamalli útgáfu Word yfir í nýja, eða öfugt? Þá veistu að það gengur ekki alltaf vandræðalaust, að stundum fer talsverður tími bara í að geta haldið áfram að vinna, og að stundum tapar maður skjölum.

Með að nota .doc formið bindur maður sig við að nota eitt forrit frá einu fyrirtæki, og svo krossleggur maður fingur og vonar að formið breytist ekki það mikið frá einni útgáfu til annarar að skjölin manns verði ennþá læsileg. Fólk myndi seint sætta sig við nýjan geislaspilara sem spilaði bara helminginn af plötunum þeirra, en það virðist alltaf jafn sátt við Word.

Allt í lagi, ég skal viðurkenna að fyrir einstaka hluti eins og ritgerðir eða greinar er fljótlegra og þægilegra að setja þær upp í Word en að ætla að tileinka sér frekar nördalegan hlut eins og Latex. Flott mál, en skrifaðu ritgerðina eða greinina í Notepad, Emacs eða einhverju svipuðu og færðu hana svo yfir í Word fyrir lokabreytingar. Það eru betri vinnubrögð, og næst þegar Microsoft breytir .doc forminu geturðu ennþá lesið það sem þú skrifaðir.

3 comments:

Anonymous said...

Þetta eru einmitt svipaðar skoðanir og ég hef. Gleymum heldur ekki öðrum kosti sem það hefur að þurfa að þýða TeX-kóða til að nota TeX: Við þýðinguna yfir í PDF-skjal getur TeX reiknað nákvæmlega út hvernig textinn muni líta best út. Þetta getur Word aldrei gert; þar skrifar maður bara línu fyrir línu og tiltekin lína getur aldrei haft áhrif á útlit línu sem áður hefur verið skrifuð. Í TeX getur jafnvel síðasta lína efnisgreinar haft áhrif á útlit allrar efnisgreinarinnar. Það er því engin furða að Word-aður texti skuli ávallt vera ljótari en TeX-aður texti. Það gildir um venjulega texta, en auðvitað sérstaklega um texta með formúlum.

Þegar um formúlur er að ræða ætti hreinlega að banna í lögum að nota Word. Þar er TeX málið og hefur verið það í meira en tvo áratugi. Allan þennan tíma hefur ekki enn komið fram betra forrit til svona verka og það hlýtur að segja sitt. Í Word eru formúlur höndlaðar sem einhverskonar sjálfstæðar einingar eða myndir sem maður þarf að tvísmella á til að breyta. Greinilega geta því formúlur í Word aldrei orðið eðlilegur partur af textanum í kring. TeX er hins vegar frá grunni hannað til að meðhöndla formúlur eins og hvern annan venjulegan texta, og þar eiga formúlur sér sama tilverurétt og venjulegur texti.

Mín skoðun er þessi: Þegar maður vill skrifborð þá fer maður út í búð og kaupir skrifborð í stað þess að búa það til sjálfur, því ef maður myndi reyna að búa það til sjálfur þá yrði útkoman líklega lélegt skrifborð. Alveg á sömu nótum: Ef maður kann ekki á betri forrit en Word, og er ekki tilbúinn til að læra á betri forrit, þá á maður frekar að fá einhvern sem kann á góð forrit til að gera hlutina almennilega; í stað þess að asnast til að gera hlutina í Word og fara einhverjar WYSIWYG-krókaleiðir til að fá hlutina til að líta út eins og maður vill og reyna að sannfæra sig síðar um að útkoman sé flott.

Hér eru fínar greinar þar sem minnst er á fyrirbæri álíka þeim og þú ræðir um: http://tinyurl.com/735sf og http://tinyurl.com/4uqbdc.

Gunni said...

Ég er ekki frá því að þetta sé nokkrum sinnum lengra en lengsta komment sem ég hef fengið hingað til. Takk!

Ég er mjög hrifinn af fyrri greininni sem þú bentir á; hún segir flest það sem ég vildi, nema bara miklu betur.

Anonymous said...

Þessi færsla er skrifuð mér til höfuðs. Ágætis beita á skínandi öngli. Ókei, ég bít á.

Eins öfugsnúið og það hljómar eru það ekki endilega gæðin sem eru það sem heillar mest við Word-forritið. Ég vinn nægilega mikið með þetta forrit til að þekkja alla galla þess vel, en öfugt við Jobs- eða Gates-aðdáendur finn ég enga þörf fyrir því að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og vörurnar þeirra séu fullkomnar. Málið er bara að þrátt fyrir sína galla er Word-forritið samt það langbesta sem ég hef prófað. Viðurkenni þó fúslega að ég hef ekki prófað neitt af þeim forritum sem þú nefnir.

Hvar næ ég í þau annars? Þú hefur vakið forvitni mína.

Allavega, ég vinn við að höndla Word-skjöl í ýmsum gæðum fyrir þýðingarstofu, og svo kem ég heim til mín og vinn sams konar vinnu með mín eigin skrif. Ég er alltaf með Orðið opið og það pirrar mig mjög lítið miðað við hversu miklum tíma við eyðum saman.

Það besta við Orðið - og hér kemur öfugsnúni hlutinn - er að það er svo algengt að maður er yfirleitt viss um að næstum allir séu að nota það sama. Það að fá frá þér skjal sem ég get ekki unnið með í Word er t.a.m. margfalt meira pirrandi fyrir mér en að fá skjal í hinu „gallaða en góða“ Word-forriti sem allir nota, því þegar þú sendir mér skjal þarf ég annað hvort að ná mér í og læra á nýtt forrit til að geta skilað skjali með úrvinnslu sem þér þóknast, eða þá að nota eitthvað eins og Notepad eða Text Editor sem eru basic forrit og öllum öðrum forritum sem þú telur upp í þessum pistli þínum langtum síðri.

Auðvitað á markaðurinn að ráða þessu, en í fullkomnum heimi myndu allir nota sama ritvinnsluforritið. Engin PDF-skjöl, Word-skjöl, og svo framvegis, bara SKJÖL. Unnin með FORRITINU. Ég gæti sætt mig við að nota Pages - Mac-forritið sem er ekkert spes - ef allir aðrir í heiminum notuðu það líka. Þá slyppi ég við vesenið að vinna texta fyrir einhvern sem notar ekki sömu forrit og ég.

En þetta er allt í lagi. Þú mátt halda áfram að úthrópa okkur sem erum ekki öðruvísi ;) ...