Jáááá!!! Jahaháááááááá!!!
Í þessum töluðu orðum var ég að klára að horfa á The Mist, sem er besta mynd sem ég hef séð síðan ég horfði aftur á Shawshank Redemption um jólin. Án gríns erum við ekki vinir lengur nema þú takir þér tvo klukkutíma til að sjá hana á næstu viku eða svo.
The Mist er byggð á sögu eftir Stephen King og segir frá hópi af smábæjarfólki sem leitar skjóls í matvöruverslun þegar dularfull þoka herjar á bæinn þeirra. Þetta hljómar ekki spennandi, og reyndar frekar leiðinlega, en eins og í öllum góðum spennumyndum skipta persónurnar öllu máli. Annað er bara glingur.
Öll áhersla er lögð á hvernig fólkinu í búðinni kemur saman. Ólíkar týpur hafa ólíka sýn á hvernig á að bregðast við, sérstaklega í byrjun þegar það er ekki ljóst hvað er í gangi. Ég hef lengi haft gaman af Stephen King, og veit að hann getur skrifað óttalegt rusl, en þegar hann er góður er hann frábær. Eins og The Dark Tower og The Running Man er The Mist ein af hans betri stundum.
Ég vil ekki segja meira um myndina því það gæti spillt einhverju. Sjáðu hana. Gerðu það. Hún er frábær.
And now, for some entertainment:
The Mist
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Þessi mynd var svo vond að hún varð eiginlega góð, ekki ósvipað "Tölvunarfræðingnum"...
Ertu að meina þetta? Mér fannst hún svo góð að mér datt ekki í hug að það væri annað mögulegt.
Var hún í bíó? Þá get ég kannski séð hana þegar hún kemur í $1 bíóið hérna í Honolulu...
Post a Comment