Þetta er trailer fyrir það sem ég vona að verði besta íslenska bíómynd allra tíma. Það hjálpar að ímynda sér djúpraddaðan mann og tilheyrandi þegar maður les þetta.
Til að spara pláss og varðveita samhengi eru þeir kaflar þegar klippt er á svartan skjá og þulur les yfir merktir með að orðið ,,þulur'' er skrifað með stórum stöfum, og klippingar eru feitletraðar.
FADE IN
Myndavélin færist frá vinstri til hægri meðan klippt er á milli atriða. Við sjáum myndarlegan mann með svipað hár og Guðmundur Steingrímsson ganga um VR-II, sitja við tölvuskjá og halda fyrirlestur. Þulur les yfir:
Þulur: ,,Í heimi þar sem hæfileikar eru það eina sem skiptir máli hafði Einar Karlsson allt.''
KLIPPT
Einar stendur með hóp af fólki fyrir framan töflu sem er útötuð í jöfnum og línuritum. Hann bendir með krít á eina jöfnuna og segir:
Einar: ,,...og ef við skilgreinum diffurvirkjann svona þurfum við ekki að hafa áhyggjur af samleitni.''
Aðstandandi: ,,En er vörpunin eintæk?''
Einar: ,,Já, það er augljóst.''
Einar byrjar að skrifa á töfluna meðan hann útskýrir.
KLIPPT
Einar gengur út úr húsi í Grafarvoginum. Afar falleg kona stendur í dyrunum og kallar:
Kona: ,,Einar! Kemurðu snemma heim í kvöld?''
Einar (Um leið og hann snýr sér við): ,,Nei, ég þarf að klára Urði.''
Konan hristir höfuðið brosandi.
Kona: ,,Stundum held ég að þú hafir gifst vinnunni en ekki mér.''
Einar hlær meðan hann snýr sér við og gengur í burtu.
Einar: ,,Aldrei! Hún er engan veginn jafn sæt og þú.''
ÞULUR: ,,En enginn sá fyrir hvað kæmi næst.''
KLIPPT
Einar situr fyrir framan lítinn kassa með nokkrum ljósum. Hann er einbeittur á svip.
Einar: ,,Þetta á eftir að breyta heiminum.''
KLIPPT SAMSTUNDIS
Fyrirlestur í Háskólabíó. Einar stendur á sviðinu fyrir framan Powerpoint glæru á tjaldinu. Við horfum upp til hans frá hlið.
Einar: ,,Herrar mínir og frúr. Ég hef búið til tölvu sem getur lært.''
KLIPPT
Myndavélin færist frá vinstri til hægri yfir agndofa salinn, áður en hún staðnæmis fyrir framann einn mann. Hann stendur upp og byrjar slow-klapp.
ÞULUR: ,,Í upphafi gekk allt vel.''
Einar stendur fyrir framan hópinn á fundinum.
Einar: ,,Líf okkar verður aldrei samt aftur.''
KLIPPT
Fréttatími. Kona les fréttir.
Fréttakona: ,,Verkefnið Urður hefur fengið alhliða fjármögnun Ríkisins og verður tengt við allar helstu opinberar stofnanir á næstu vikum.''
KLIPPT
Einar og aðstoðarmenn hans opna kampavínsflösku og fagna. Einar heldur á glasi.
Einar: ,,Þetta er bara byrjunin. Núna getur ekkert stöðvað okkur.''
KLIPPT
Lok sama fréttatíma og áðan. Fréttamaður og fréttakona spjalla saman.
Fréttamaður: ,,Heldurðu að það gangi í alvöru að láta tölvu stjórna þessu öllu saman?''
Fréttakona: ,,Já, það getur nú varla gengið verr en áður.''
Bæði hlæja meðan textinn byrjar að rúlla yfir skjáinn.
KLIPPT
Einar breiðir yfir sex ára son sinn sem vill ekki fara að sofa.
Strákur: ,,En hvað ef skrýmslin koma?''
Einar brosir við.
Einar: ,,Það eru engin skrýmsli til. Ekki lengur.''
ÞULUR: ,,En svo fór allt úrskeiðis.''
KLIPPT
Einar og aðstoðarmaður hans Jói standa úti um nótt. Það er þrumuveður.
Einar: ,,Hmm... mér lýst ekki á þetta. Jói, ég þarf að rjúka heim. Tékkaðu á Urði fyrir mig.''
ÞULUR: ,,Urður.''
KLIPPT
Jói sest fyrir framan tölvuskjá og byrjar að lesa.
ÞULUR: ,,Lærði.''
Jói situr fyrir framan sama skjáinn.
Jói: ,,Ha? Hvað er nú þetta?''
ÞULUR: ,,Að drepa.''
Jói les vantrúaður af skjánum:
Jói: ,,Fyrir i á milli eins og milljón: Deyðu, deyðu, deyðu.''
Í bakgrunni fer hljóð úr nálarprentara síhækkandi. Jói snýr sér við og öskrar.
KLIPPT
Daginn eftir standa Einar og nokkrir lögregluþjónar yfir því sem er eftir af Jóa.
Einar: ,,Urður, hver gerði þetta?''
Urður: ,,Því miður Einar, ég get ekki sagt þér það.''
Einar snýr sér hægt við.
Einar: ,,Hvað meinarðu?''
KLIPPT
Einar stendur með aðstoðarmönnum sínum.
Einar: ,,Þrumuveðrið fjarlægði allar hindranir af Urði. Hún getur lært hvað sem er núna.''
Aðstoðarkona sem fær nýjustu fréttir í síma: ,,Urður hefur náð stjórn á umferðarljósunum og internetinu. Það er aðeins tímaspursmál hvenær hún hún tekur yfir símakerfið.''
Einar: ,,Guð minn góður.''
KLIPPT
Gatnamót. Tveir bílar koma úr sitt hvorri áttinni að ljósum sem sýna öll grænt og lenda í árekstri.
KLIPPT
Heimili Einars. Konan hans stendur í horninu á eldhúsinu með farsíma í hendinni og hrópar á hjálp yfir dyninn. Búsáhöldin hafa króað hana af.
KLIPPT
Við sjáum Urði. Á tölvuskjánum birtist ,,ha'', ,,ha'', ,,ha'', ,,ha'' með tempóinu 90 slög á sekúndu.
KLIPPT
Aðstoðarkona Einars heyrir eitthvað í síma og snýr sér að Einari.
Aðstoðarkona: ,,Einar... það er konan þín. Hún er dáin.''
Einar horfir einbeittur í tómið.
Einar: ,,Nú er þetta persónulegt.''
Hann sest við tölvu um leið og ,,Elite'' með Deftones tekur að hljóma og byrjar að skrifa af offorsi inn í Word.
ÞULUR: ,,Í sumar.''
Einar skrifar áfram. Það eru svitaperlur á enni hans.
ÞULUR: ,,Er enginn.''
Einar byrjar að mulda við skrifin.
Einar: ,,Ef satt, þá goto...''
ÞULUR: ,,Með vírusvörn.''
Einar byrjar að öskra af öllum lífs og sálar kröftum meðan hann slær síðustu stafina inn. Um leið og hann ýtir á ,,Enter'' þagnar tónlistin og það er klippt á svartan skjá með hvítum blikkandi bendli í efra vinstra horninu. Ekkert heyrist nema ákafur andardráttur; einu sinni inn og út, tvisvar, þrisvar, og um leið og sá fjórði klárast heyrist Windows villuhljóðið og það birtist blue screen of death sem á stendur:
TÖLVUNARFRÆÐINGURINN
1 comment:
Ég sé þetta ljóslifandi fyrir mér! Láttu verða af þessu. Ég sting upp á Helga Þorbergs í hlutverki tölvunarfræðingsins.
Post a Comment