Um helgina gekk ég loks í hóp siðmenntaðs fólks og fékk mér iGoogle síðu sem birtir sjálfkrafa tölvupóstinn minn, veðrið hérna svo ég þurfi ekki að kíkja út, og allar nýjar færslur á þeim bloggum og teiknimyndasíðum sem ég skoða reglulega. Þetta hefur svo gjörsamlega eyðilagt internetið fyrir mér á minni tíma en það tekur að segja ,,Búja!''.
Í gamla daga, það er fyrir helgi, var mjög notaleg stund þegar ég helti mér upp á kaffibolla, hlustaði á músík, tékkaði á tölvupóstinum og kastaði út internetunum. Þetta tók alveg hálftíma, eða jafnvel meira eftir dagsformi, og var voða fín leið til að byrja daginn.
Núna opna ég Firefox, sé strax allt sem er nýtt á netinu og er búinn að taka rúntinn á fimm til tíu mínútum. Það er ekkert hægt að lifa svona! Hvað á ég eiginlega að gera meðan ég klára kaffið mitt? Lesa? Tala við nágrannana? Ég held nú ekki; bækur eru fyrir ferhyrninga og þetta fólk sem býr með mér er allt einhversskonar útlendingapakk.
Spurning mín til ritsjórnar Morgunblaðsins er því tvíþætt:
i) Borga ég ekki í lífeyrissjóð?
ii) Hvað ætlið þið að gera í öllu þessu veggjakroti?
RSS straumar hafa eyðilagt líf mitt
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
oh, grashopper. Þú átt margt eftir ólært.
Þú þarft bara að bæta við rss feedunum, þetta er allt spurning um hversu mörg þú kemst yfir áður en kaffið er búið, ekki hvort rss feedin eru búin á undan.
Internetið er infinite, vissirðu það ekki?
Ha! Rangt!
Post a Comment