Ruslatunnur í Shaftsbury:
Garth Marenghi's Darkplace

,,Something was pouring from his mouth. He examined his sleeve. Blood!? Blood. Crimson copper-smelling blood, his blood. Blood. Blood. Blood. ...and bits of sick.''

Það er svolítið snúið að lýsa Garth Marenghi's Darkplace. Sko, í þáttunum, sem eru miskunnarlaus skopstæling af ákveðnum sjónvarpsþáttum, er Garth Marenghi vinsæll hryllingssagnahöfundur, sem minnir meira en lítið á Stephen King á sínum verstu dögum. Fyrir nokkrum árum skrifaði hann, leikstýrði og lék aðalhlutverkið í þáttaröðinni Darkplace, sem gerist á samnefndum spítala og fjallar um baráttu læknisins Rick Dagless við öfl hins illa. Mjög Riget og The Dead Zone allt saman.

Þess vegna er eins gott að snilldin í Garth Marenghi's Darkplace liggur ekki í söguþræðinum sem slíkum, heldur hvernig þeir ná að sigta út allt það slæma við Stephen King sögur, sjónvarp á 9. áratugnum, og óörugga rithöfunda. Það hefur aldrei verið jafn gaman að horfa á illa talsett atriði, vondar tæknibrellur, örvæntingafullar tilraunir til að finna skrýmsli, og dásamlega illa leikin samtöl. Baywatch hefur nákvæmlega ekkert í Darkplace að gera.

Við ætlum ekkert að ræða þetta frekar. Eins og nýja platan frá Mars Volta er Darkplace dealbreaker. Annað hvort fílarðu þetta eins og þú sért fjárkúgaður til þess eða við eigum ekkert sameiginlegt.

Þáttur 1, hluti 1

Þáttur 1, hluti 2

Þáttur 1, hluti 3

3 comments:

Anonymous said...

........ 200 orð Gunni?? ... what is up with that?? Viltu að ég falli ??

tul

Anonymous said...

öskrandi snilld!

Gunni said...

Ég er bara að hugsa um hag þinn, hver sekúnda sem þú lest eitthvað af ruglinu hér er sekúnda sem þú ert ekki að læra.