Hinn stórmerkilegi P. L'Hermite

Ég hef fundið manninn með versta starf í heimi. Hann heitir P. L'Hermite, vinnur hjá einhverri nefnd Evrópusambandsins, og hefur þar þurft að saurga nafn sitt með útgáfum eins og: Processing and use of sewage sludge, Long-term effects of sewage sludge and farm slurries applications og hinni óviðjafnanlegu Odor and ammonia emissions from livestock farming.

Þessi síðasta er sérstaklega góð, og má lesa í heild sinni gegnum linkinn að ofan.

Ég get alveg skilið að fólk taki ýmislegt á sig til að klifra upp metorðastigann, en ég held myndi frekar finna mér eitthvað annað að gera við líf mitt en að setja nafn mitt á New developments in processing of sludges and slurries.

No comments: