Fáir menn. Margir óvinir. Miklar hetjur.

Í kvöld átti sér stað atburður sem á sér engan líka á síðari tímum, ef í mannkynssögunni allri. Ég, Stef, og Will félagar mínir vorum í vinalegum fótboltaleik þegar að okkur streymdi botnfall franskrar æsku.

Upphófust nú siðmenntaðar samræður af okkar hálfu, og runa ósanngjarnra og ósannra móðgana úr þeirra flokki. Eftir smástund sáum við okkur tilneydda til að verja heiður okkar, og skoruðum á lýðinn í knattleik með einföldum reglum; sá sem færi með sigur af hólmi fengi uppreisn æru og ævilöng afnot af sparkvellinum.

Það eru engin orð sem geta lýst gangi litlu orrustunnar okkar. Yfirburðir ólíklega liðsins okkar voru svo ruddalegir að ég reyni ekki einu sinni að heimfæra þá á öruggann raunveruleika ykkar. Það væri ekki við hæfi. Ég læt nægja að segja að við hættum að telja mörkin þegar staðan var 34-0 okkur í vil.

Jú, að vísu var aldursmunurinn einhver. Meðan hið skuggalega myndarlega samansafn okkar taldi á milli 20 og 22ja ára höfðu andstæðingar okkar í mesta lagi 10 ára reynslu af hinni fláu veröld.

En það skiptir ekki máli! Aðalatriðið er að í dag hafði litli maðurinn betur. Þetta er það sem skáldsögur og hetjuljóð eru samin um. Þetta eru sögurnar sem lítil börn vilja heyra áður en þau fara að sofa svo þau viti að allt verði í lagi. Þetta er það sem gerir þjóð mikla.

Svo að þessi nótt, Táranóttin, gleymist aldrei hef ég tekið auðmjúklega að mér að semja gamaldags hetjurímu um atburðinn. Ég óska eftir gítarsólói sem verður leikið við hverja upplesningu.

Ofurefli bornir
þreyttir drengir líta
gegn gálkni miklu
er grið gefur engin

Ganga menn til hildar
bræðralagi bundnir
vel verki vaxnir
á þrífætlinga minna

Óvinurinn vörnum
engum kemur við
ber hendur fyrir andlit
án árángurs mikils

Undir bjartri kvöldsólinni
í grát dusilmenni brestur
milli ekkasoga stynur;
maman, maman, maman

4 comments:

Anonymous said...

og vosbúð!!!!

Allt endar í vosbúð!!!

Anonymous said...

Ég er stoltur af þér Gunnar.

-Heiðar

Anonymous said...

Þú ert hetja.

Jóhanna Potterína

Anonymous said...

þessi sögu ætla ég að segja barnabörnum mínum þegar ég kem þeim í rúmið ... Sagan af því hvernig hinn frækni Gunnar og frakkarnir tveir unnu bug á óaldarlýðnum ... HUZZAH !!
-tul