ÖSKRANDI FRAMFARIR

Nú er ég pínulítill megalúði og nota þess vegna skel, Emacs, Firefox og aðra slíka frábæra hluti. Allt á þetta sameiginlegt að nota Control lykilinn meira en góðu hófi gegnir, sem getur leitt til ansi leiðinlegra verkja í vinstri litlaputta.

En lausnin er hér; maður skiptir Caps Lock lyklinum út fyrir Control. Ef maður spáir í því meikar þetta frekar mikið sens, ég meina, hvenær notaðirðu síðast Caps Lock? Og hvað ýtirðu oft á Control á dag? Þú ættir alla vera að ýta á hann í hvert einasta skipti sem þú skiptir á milli flipa í Firefox, þannig það ætti að vera nokkuð oft.

Alla vega. Ef þú notar Linux er nokkuð einfalt að gera þetta, alla vera þannig þetta virki í X, maður opnar bara xorg.conf skránna (hún finnst yfirleitt í /etc/X11), finnur hvar lyklaborðið er skilgreint, og bætir 'Option "XkbOptions" "ctrl:nocaps"' þar inn. Það eru til aðrar leiðir til að gera þetta, en þær sem ég reyndi fokkuðu á ýmsan hátt í íslenska lyklaborðinu mínu. Þessi virkar þó.

Ef þú notar Windows XP geturðu litið á þessa síðu hér. Þú þarft að fikta aðeins í registry en það er ekkert mál, passaðu bara að lesa alla síðuna og átta þig á nákvæmlega hverju þú ætlar að breyta og í hvað áður en þú byrjar. Ef þú notar einhverja aðra útgáfu af Windows en XP get ég aðeins ályktað að þú sért einhversskonar undirmennsk skáldsagnavera, þannig ég veit ekki alveg hvað ég ætti að ráðleggja þér. Nema kannski að passa þig á fólki sem vill fara í gátuleik upp á glingur við þig.

Og ef þú notar makka ætti þessi grein að geta hjálpað þér, alla vega ef þú ert með OS X 10.4.

Jæja, þá eru allir tilbúnir. Ég vil að þið teygið ykkur nú undir sætin ykkar og finnið Bill Hicks diskinn, fimm þurrkuðu grömmin af ofskynjunarsveppum og eintakið af Emacs sem ég teipaði þar niður áðan. Brrrrrooooooooowwwwwwwwww.

No comments: