Ef maður notar bash einhvertímann er nauðsynlegt að vita af smá trikki: breytan !$ inniheldur síðasta inntak síðustu skipunar.
Þetta þýðir að ef maður ætlar að færa nokkrar skrár einhvert og skipta svo yfir í möppuna sem maður færði hana í, getur maður skrifað
mv skrá1.gaur skrá2.gaur skrán.gaur /ógó/langt/pathog sparað sér að skrifa "cd /ógó/langt/path".
cd !$
Það er hægt að segja ýmislegt vont um bash, en eitt sem það gerir mjög vel er að gefa manni nóg reipi til að hengja sig og benda manni á næsta stól.
2 comments:
hahaha :D
éld'ðú ættir að skrifa hjálparsíðu um bash. hefurðu t.d. fundið út hver er nákvæmlega munurinn á einföldum/tvöföldum svigum/hronklofum:
( bla )
(( bla ))
[ bla ]
[[ bla ]]
??? mér hefur alla vega virst bash geta verið ansi dyntótt þegar þessu er splæst sem if-skilyrði... :P
Tja, ég veit að "[ eitthvað ]" er skammstöfum sem kallar á fallið "test" með argúmentinu "eitthvað".
Restinni er ég ekki viss á, en "((eitthvað))" kemur eitthvað við útkomunni úr skipuninni "eitthvað".
Ég verð voðalega feginn daginn sem Bash deyr.
Post a Comment