Ahh, það er alltaf voða fínt að fikta í hlutum eins og uppsetningu þegar maður nennir ekki að skrifa eða gera eitthvað af viti.
Því miður hef ég ekkert merkilegt að segja. Það eru búin að vera miðannarpróf hjá mér í þessari viku og þó það hafi bara gengið nokkuð vel taka þau samt það andlega á að maður nennir ekkert að hugsa eftir þau.
Mér finnst samt ennþá fyndið að ég var annar hæstur af fjörutíu manns í algebruprófinu, sem var selvfolgelig á frönsku. Og ég sem tala ekki frönsku.
Þetta væri auðvitað miklu tilkomumeira ef ég kynni ekki nú þegar þessa algebru, en maður verður víst að taka því sem að höndum ber. Við sjáum svo til hvernig fellagreiningarprófið gekk.
En fyrir áhugamenn um klaufavillur á prófum má geta þess að hlutafleiður fallsins (x,y) --> x+y eru fastafallið 1 sama hvort maður deildar með tilliti til x eða y, en ekki samsemdarföllin x og y eins og ég sagði á líkindafræðiprófinu.
Margir myndu búast við að eftir BS í stærðfræði kynni maður að diffra, en svo er víst ekki.
Tímasóun
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
snillingur! segi ég og skrifa... :)
Post a Comment