Ágætis byrjun

Voila! Ný síða fyrir sama ruglið og venjulega.

Ég hefði sennilega getað tímasett skiptinguna betur, mig langaði að klára gömlu síðuna og hafa bara færslur frá Grenoble á þessari, en bestu áform manna og músa eiga það til að fokkast svolítið upp. Það verður bara að hafa það.

Hér verða alla vega færslur frá Grenoble. Mér finnst ágætt að skipta reglulega um svona síður því þær verða frekar leiðinlega í meðförum eftir nokkurn tíma. Þó að allt hér verði skrifað í Grenoble myndi ég samt ekkert búast við minna rugli en venjulega, eða einhverju sem gæti mögulega verið gagnlegt fyrir fólk á leiðinni hingað. Þannig virkar þetta ekki.

Fyrir þá sem ekki vita er titillinn stolinn frá Vidda dönskukennara. Einhvern daginn var hann að útskýra fyrir okkur af hverju við værum nú að læra þetta allt saman; það virkar alveg að labba inn í búð, benda á vegginn og hrópa "Ég! Marmelaði!" en það er miklu skemmtilegra að gera það almennilega.

Mér finnst þetta viðeigandi því í augnablikinu er franskan mín er á marmelaðistiginu.

4 comments:

Anonymous said...

Flott hjá þér. Mætti svo bjóða þér að blogga meira? :)

Gunni said...

Svona svona, ég þarf að klára hitt fyrst.

Hvernig fannstu þetta samt?

Anonymous said...

Andlegu tengslin á milli okkar sögðu mér hvar ég ætti að leita.

Eða

Þessi síða er með tengil sem vísar á mína síðu. Og af því að Wordpress er snilld sé ég allar síður sem vísa á síðuna mína úr stýrikerfinu mínu.

Veldu hvort þér líkar betur.

Gunni said...

Jú, af því við eigum báðir rætur að rekja til indiána Norður-Ameríku deilum við djúpum andlegum tengslun við náttúruna. Þar af leiðandi tengjumst við nánum böndum sem venjulegt fólk skilur ekki.

Nánar:

Ég ~ Náttúra
Þú ~ Náttúra
=> Náttúra ~ Þú
=> Ég ~ Náttúra & Náttúra ~ Þú
=> Ég ~ Þú

þar sem fylla má í smáatriðin með að gera ráð fyrir að öll vensl séu jafngildisvensl.

... Ég er ekki alveg viss hvaðan þetta kom. Ég var að lesa "Scar tissue", ætli þetta sé ekki einhversskonar útrás fyrir fokking hipparöflið í Antony Kiedis.