Ágætis byrjun

Voila! Ný síða fyrir sama ruglið og venjulega.

Ég hefði sennilega getað tímasett skiptinguna betur, mig langaði að klára gömlu síðuna og hafa bara færslur frá Grenoble á þessari, en bestu áform manna og músa eiga það til að fokkast svolítið upp. Það verður bara að hafa það.

Hér verða alla vega færslur frá Grenoble. Mér finnst ágætt að skipta reglulega um svona síður því þær verða frekar leiðinlega í meðförum eftir nokkurn tíma. Þó að allt hér verði skrifað í Grenoble myndi ég samt ekkert búast við minna rugli en venjulega, eða einhverju sem gæti mögulega verið gagnlegt fyrir fólk á leiðinni hingað. Þannig virkar þetta ekki.

Fyrir þá sem ekki vita er titillinn stolinn frá Vidda dönskukennara. Einhvern daginn var hann að útskýra fyrir okkur af hverju við værum nú að læra þetta allt saman; það virkar alveg að labba inn í búð, benda á vegginn og hrópa "Ég! Marmelaði!" en það er miklu skemmtilegra að gera það almennilega.

Mér finnst þetta viðeigandi því í augnablikinu er franskan mín er á marmelaðistiginu.